Innlent

Styðja við miðstöð í Namibíu

undirritun Valgerður Stefánsdóttir, forstöðumaður SHH, og Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ.
mynd/gunnar salvarsson
undirritun Valgerður Stefánsdóttir, forstöðumaður SHH, og Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ. mynd/gunnar salvarsson

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi (SHH) mun styðja við bakið á stjórnvöldum í Namibíu við stofnun og starfrækslu sambærilegrar stofnunar þar í landi.

Undirritað var undir verksamning þess efnis milli SHH og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) í gær.

Stuðningurinn felst meðal annars í ráðgjöf varðandi rannsóknir á namibísku táknmáli og þjálfun táknmálstúlka en SHH hefur á undanförnum árum unnið á vegum ÞSSÍ við að bæta kennslu heyrnarlausra í Namibíu og þjálfun táknmálstúlka.

- vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×