Erlent

Ýttu manni fyrir lest í Kaupmannahöfn

Frá Kaupmannahöfn.
Frá Kaupmannahöfn.

Danska lögreglan handtók í morgun fjóra karlmenn og eina konu fyrir að hafa ýtt fjörutíu og átta ára gömlum karlmanni fyrir lest. Atvikið var í morgun á lestarstöð í Ishøj-hverfinu í norð-vesturhluta Kaupmannahafnar.

Maðurinn festist undir lestinni. Hann var þegar fluttur á sjúkrahús og er í lífshættu. Vitni segja að maðurinn hafi rifist við fólkið sem var handtekið skömmu áður en honum hafi verið hrint fyrir lestina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×