Plane Stupid-samtökin loka Stansted-flugvelli Atli Steinn Guðmundsson skrifar 8. desember 2008 08:20 Mótmælendurnir klæðast skærgrænum vestum með áletruninni „Gerðu eitthvað“ sem vísar til umhverfisverndarsjónarmiða þeirra. MYND/Telegraph
Rúmlega 50 umhverfisverndarsinnar hafa lokað flugbraut Stansted-flugvallar í London. Það var rétt upp úr klukkan þrjú í nótt að hópur 54 svarinna andstæðinga gróðurhúsalofttegunda braut sér leið inn á einu flugbraut Stansted-flugvallarins og lokuðu henni. Það er reyndar ekki algjörlega rétt að hópurinn hafi lokað flugbrautinni því að hún er þegar lokuð vegna viðgerða en hins vegar stóð til að opna hana á ný klukkan fimm í morgun. Það er hópurinn Plane Stupid sem stendur fyrir þessum aðgerðum og felst orðaleikurinn í því að plane er ritað eins og í enska orðinu airplane eða flugvél. Tilgangurinn er að mótmæla áætlun breskra stjórnvalda um að gera aðra flugbraut á Stansted og auka þar með umferð um flugvöllinn. Telegraph hefur eftir einum mótmælendanna að 13 prósent þess koltvísýrings sem losaður er í Bretlandi sé af völdum flugumferðar og þetta sé hreinlega ekkert vit lengur. Þá benda samtökin á fyrirætlanir um að bæta við flugbraut á Heathrow-flugvelli sem auki enn á mengunina. Þrátt fyrir mengun er andrúmsloftið þó nokkuð gott á Stansted, lögreglan hefur handtekið fjóra en hinum fimmtíu er orðið frekar kalt, segja þeir.
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Sjá meira