Tók strætó heim með hnífinn í bakinu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. apríl 2008 06:15
Rússneskur rafvirki sem fékk sér hressilega neðan í því með vaktmanni á vinnustað hans að loknum vinnudegi veitti því enga athygli þegar sá síðarnefndi rak hníf á kaf í bak hans. Það var ekki fyrr en hinn 53 ára gamli Júrí Lyalin var kominn á heimili sitt að eiginkona hans tók eftir handfangi sem stóð út úr bakinu á honum og hringdi þegar á sjúkrabifreið. Lyalin tók atburðinum með miklu jafnaðargeði og sagði þá félagana hafa setið að drykkju og „hvað gerist svo sem ekki þegar menn eru að drekka?" sagði hann. Yfirvöld líta atvikið þó ekki jafnmildum augum og vinnufélaginn á yfir höfði sér ákæru og hugsanlega þunga refsingu. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að deilur höfðu risið milli drykkjufélaganna með fyrrgreindum afleiðingum. Lyalin tók þó strætisvagn heim með hnífinn í bakinu eins og ekkert hefði í skorist. Læknir sem meðhöndlaði hann sagði það mesta mildi að engin líffæri hefðu orðið fyrir laginu en hnífurinn stakkst einungis í vöðvavef. BBC greindi frá.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Innlent Fleiri fréttir Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Sjá meira