Leifur: Frábær frammistaða Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. júní 2008 18:13 Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis. Mynd/E. Stefán
Leifur Garðarsson var vitanlega í skýjunum með sigur sinna manna í Fylki sem unnu 2-1 sigur á FK Riga í Lettlandi í dag. Um var að ræða fyrri viðureign liðanna í fyrstu umferð Intertoto-keppninnar en næsti leikurinn fer fram á sunnudaginn eftir rúma viku á Laugardalsvelli. Valur Fannar Gíslason og Peter Gravesen skoruðu mörk Fylkismanna í dag. „Þetta var einfaldlega frábær frammistaða hjá strákunum," sagði Leifur í samtali við Vísi. „Við lögðum upp með að vinna varnarleikinn vel og það var frábært að fá svo mark snemma í leiknum. Færslan og vinnan í liðinu var til fyrirmyndar." Valur Fannar skoraði með skalla eftir hornspyrnu Hermanns Aðalgeirssonar um miðjan fyrri hálfleikinn. Peter skoraði svo úr vítaspyrnu á 70. mínútu eftir að brotið var á Allan Dyring. Heimamenn náðu svo að minnka muninn fimm mínútum síðar með skoti sem fór í stöng Fylkismarksins, í bakið á Fjalari og inn. „Við lögðum upp með að spila mjög þéttan varnarleik og koma hratt upp völlinn. Það gekk eftir. Þeir voru meira með boltann en það skilaði ekki miklu. Við fengum fleiri dauðfæri en þeir." Leifur sagðist ekkert vita um þetta lið fyrir leikinn en hann stillti upp ungu liði í dag. Kristján Valdimarsson, Þórir Hannesson og Kjartan Ágúst Breiðdal í vörninni, Björn Orra Hermannsson á miðjunni og Hermann Aðalgeirsson í sókninni. „Það er samt ekki hægt að taka neinn sérstaklega úr þessum hópi. Þeir stóðu sig allir vel, sérstaklega ungu mennirnir." Leifur hrósaði einnig fimm stuðningsmönnum Fylkis og meðlimum stuðningsklúbbsins Kidda Tomm sem komu með í ferðina. „Þessir fimm menn voru hreint ótrúlegir og þeir hreinlega áttu stúkuna. Lettarnir litu bara í kringum sig og voru eitt stórt spurningamerki," sagði Leifur og hló. Ferðalagið gekk þó ekki klakklaust fyrir sig. „Hálftíma eftir að við fórum í loftið á fimmtudagsmorgun þurfti vélin að snúa við og lenda aftur í Keflavík. Þetta þýddi að við misstum af tengifluginu í Kaupmannahöfn sem við vorum að bóka. Við gátum þó sent fimmtán stráka áfram til Lettlands en án farangurs. Aðrir urðu eftir og fylgdu töskunum alla leið en fyrir þá tók ferðalagið alls 21 tíma." „Manni var því hætt að litast á blikuna en þeir mættu þrátt fyrir þetta mjög vel stemmdir í dag. Þetta var frábært."
Fótbolti Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Sjá meira