Enski boltinn

Ronaldo var næstum farinn til Arsenal

NordicPhotos/GettyImages

Alex Ferguson segir að litlu hafi mátt muna að Cristiano Ronaldo hefði gengið í raðir Arsenal áður en hann ákvað að semja við Manchester United.

"Það getur ekki hafa munað miklu, því Arsene Wenger var örugglega búinn að bjóða honum á Highbury einum 25 sinnum," er haft eftir Ferguson í Sun í dag.

Wenger viðurkennir aðdáun sína á portúgalska snillingnum og staðfesti orð Ferguson.

"Ef ég gæti valið einn leikmann frá United þá væri það Ronaldo af því við vorum svo nálægt því að kaupa hann á sínum tíma. Við vorum ekki nema nokkrum hundruðum þúsunda punda frá því að landa honum. Það munaði mjög litlu," sagði Wenger.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×