Sheffield United sló út Manchester City Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. janúar 2008 17:57 Blaðra eða bolti? Luton Shelton var ekki í vafa. Nordic Photos / Getty Images
Þau óvæntu tíðindi urðu í lokaleik fjórðu umferðar ensku bikarkeppninnar að B-deildarlið Sheffield United sló út úrvalsdeildarlið Manchester City, 2-1. Manchester City er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Sheffield United í fjórtánda sæti B-deildarinnar. Það eru því 26 sæti sem skilja á milli liðanna tveggja sem stendur í ensku deildakeppninni. Sheffield komst yfir í leiknum með marki Luton Shelton á 12. mínútu. Lee Martin átti fyrirgjöf frá vinstri þar sem Michael Ball, varnarmaður City, missti boltann frá sér og Luton Shelton skoraði á fjarstönginni. Það var mikið af bláum og hvítum blöðrum í vítateig City á þessum tíma, eins og sést á meðfylgjandi mynd, og ekki útilokað að Ball hafi hreinlega ruglast á boltanum og blöðrunum. Aðeins tólf mínútum síðar bættu heimamenn við öðru marki en Jonathan Stead var þar að verki með skoti úr vítateignum. City náði að klóra í bakkann með marki varamannsins Daniel Sturridge. Markið var sérlega glæsilegt en hann fékk boltann eftir hornspyrnu, tók hann á hægra lærið og skaut knettinum í slána og inn. En þótt markið væri glæsilegt dugði það ekki til og Sheffield United fagnaði góðum sigri og sæti í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar.
Mest lesið Stjarnan - Tindastóll | Stólarnir vilja svara fyrir sárt tap Körfubolti Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Fótbolti Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Íslenski boltinn Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Körfubolti Þriðji sigur Liverpool í röð Enski boltinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Enski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Enski boltinn Lést í miðjum leik Fótbolti Fleiri fréttir Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Sjá meira