Erlent

Kaffidrykkja eykur hættu á fósturláti

Kaffi ættu barnshafandi konur ekki að drekka samkvæmt rannsókninni.
Kaffi ættu barnshafandi konur ekki að drekka samkvæmt rannsókninni. MYND/Getty Images

Ný rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum sýnir að barnshafandi konur ættu að varast kaffidrykkju meðan á meðgöngunni sendur. Jafnvel hófleg neysla á kaffi yfir meðgöngutímann eykur hættuna á fósturlátum.

Þeir sem stóðu að rannsókn þessari segja að konur ættu alfarið að láta af kaffidrykkju á fyrstu 12-14 vikum meðgöngunnar. Í ljós kom að þær konur sem neyta 200 milligramma af kaffi á dag eru helmingi líklegri til að missa fóstur en þær sem láta kaffið alveg vera.

Ekki er vitað nákvæmlega hvað veldur því að kaffi er skaðlegt óléttum konum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×