Árásir Ísraela halda áfram - 270 látnir 28. desember 2008 10:11
Ísraelsher hélt áfram að varpa sprengjum á Gaza í morgun og nú hafa um 270 manns fallið og yfir sex hundruð særst frá því árásirnar hófust í gærdag. Gerðar hafa verið yfir þrjátíu árásir á Gaza það sem af er degi, en stuðningsmenn Hamas samtakanna hafa einnig skotið um tíu eldflaugum yfir til Ísraels, en án þess að valda þar manntjóni í dag, en í gær féll einn maður í slíkri eldflaugaárás. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman í gærkvöldi og lýsti áhyggjum sínum af ástandinu og hvatti til vopnahlés. Árásir Ísraelsmann miða aðallega á skotmörk sem þeir telja hernaðarlega mikilvæg, eins og þjálfunarstaði Hamasliða, lögreglustöðvar og stjórnsýslubyggingar. Engu að síður hefur nokkur fjöldi óbreyttra borgara fallið og særst. Þá hafa Ísraelsmenn stillt upp skriðdrekum skammt utan við Gaza, til að vera reiðubúnir í landhernað, sem þó er talinn ólíklegur enn sem komið er. Kosningar eru í Ísrael í febrúar og telja sumir fréttaskýrendur að það kunni að hafa áhrif á ákvarðanir stjórnmálamanna þar um hernaðinn á Gaza. Forseti Írans hefur fordæmt árásir Ísraelsmanna og segir þær glæpsamlegar. Hann sagði að Íranar myndu standa við bakið á Palestínumönnum og hvatti alþjóðasamfélagið til að gera slíkt hið sama.
Tengdar fréttir 120 látnir eftir loftárásir Ísraela Rúmlega 120 Palestínumenn eru látnir og yfir 200 særðir eftir að Ísraelar hófu röð loftárása á Gaza-ströndina í morgun. Tugum flugskeyta hefur verið skotið á skotmörk á svæðinu, þar á meðal lögreglustöð. Gaza-svæðið hefur verið á yfirráðasvæði Hamas-samtakanna frá í júní 2007. 27. desember 2008 10:47 Telur að umheimurinn hafi skilning á aðgerðum Ísraela Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, telur að Telur að umheimurinn hafi skilning á aðgerðum Ísraela á Gazasvæðinu. Tala fallinna í loftárásum Ísraelshers á Gaza í dag fer stighækkandi og nú er talið að um tvö hundruð manns hafi fallið og á fjórða hundrað manns hafi særst. 27. desember 2008 17:08 Egyptar fordæma loftárásir Ísraela - 155 látnir Stjórnvöld í Kaíró fordæma loftárásir Ísraela í harðorði yfirlýsingu sem ríkisfréttastöðin Mena birti fyrir stundu. Egyptar telja að Ísraelar beri fulla ábyrgð á dauða yfir 155 Palestínumanna á Gaza-svæðinu í morgun. 27. desember 2008 13:18 Ingibjörg gagnrýnir Ísraela vegna loftárása á Gaza Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisràðherra, telur hernaðaraðgerðir Ísraels à Gazaströndinni í dag óverjandi. Þó að Ísrael standi frammi fyrir öryggisógn og að àkvörðun Hamas um ad segja sig frá vopnahléi sé röng verða viðbrögð að vera í samræmi við hættu eins og alþjóðleg mannúðarlög krefjast, segir Ingibjörg í yfirlýsingu vegna atburða dagsins. 27. desember 2008 18:01 Árásum Ísraela mótmælt í Líbanon og Egyptalandi Gífurleg reiðialda fer um hinn arabíska heim vegna fordæmalausra loftárása Ísraelshers á Gaza í dag. Árásunum var meðal annars mótmælt í Líbanon og Egyptalandi. Arababandalagið krafðist þess í dag að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði nú þegar kallað saman til að taka á málinu. 27. desember 2008 21:15 Fjöldamorð framin til að uppræta Hamas - 195 látnir Ísraelar fremja fjöldamorð á Palastínumönnum á Gaza-svæðinu til að ganga á milli bols og höfuðs á Hamas-samtökunum, að mati Sveins Rúnars Haukssonar formanns félagsins Ísland-Palestína. Hann segir að árásin í morgun hafi verið yfirvofandi um nokkurt skeið. Það styttist í þingkosningar í Ísrael og frambjóðendur keppast við að lýsa því yfir að þeir vilji eyða Hamas. 27. desember 2008 15:30 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira
120 látnir eftir loftárásir Ísraela Rúmlega 120 Palestínumenn eru látnir og yfir 200 særðir eftir að Ísraelar hófu röð loftárása á Gaza-ströndina í morgun. Tugum flugskeyta hefur verið skotið á skotmörk á svæðinu, þar á meðal lögreglustöð. Gaza-svæðið hefur verið á yfirráðasvæði Hamas-samtakanna frá í júní 2007. 27. desember 2008 10:47
Telur að umheimurinn hafi skilning á aðgerðum Ísraela Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, telur að Telur að umheimurinn hafi skilning á aðgerðum Ísraela á Gazasvæðinu. Tala fallinna í loftárásum Ísraelshers á Gaza í dag fer stighækkandi og nú er talið að um tvö hundruð manns hafi fallið og á fjórða hundrað manns hafi særst. 27. desember 2008 17:08
Egyptar fordæma loftárásir Ísraela - 155 látnir Stjórnvöld í Kaíró fordæma loftárásir Ísraela í harðorði yfirlýsingu sem ríkisfréttastöðin Mena birti fyrir stundu. Egyptar telja að Ísraelar beri fulla ábyrgð á dauða yfir 155 Palestínumanna á Gaza-svæðinu í morgun. 27. desember 2008 13:18
Ingibjörg gagnrýnir Ísraela vegna loftárása á Gaza Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisràðherra, telur hernaðaraðgerðir Ísraels à Gazaströndinni í dag óverjandi. Þó að Ísrael standi frammi fyrir öryggisógn og að àkvörðun Hamas um ad segja sig frá vopnahléi sé röng verða viðbrögð að vera í samræmi við hættu eins og alþjóðleg mannúðarlög krefjast, segir Ingibjörg í yfirlýsingu vegna atburða dagsins. 27. desember 2008 18:01
Árásum Ísraela mótmælt í Líbanon og Egyptalandi Gífurleg reiðialda fer um hinn arabíska heim vegna fordæmalausra loftárása Ísraelshers á Gaza í dag. Árásunum var meðal annars mótmælt í Líbanon og Egyptalandi. Arababandalagið krafðist þess í dag að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði nú þegar kallað saman til að taka á málinu. 27. desember 2008 21:15
Fjöldamorð framin til að uppræta Hamas - 195 látnir Ísraelar fremja fjöldamorð á Palastínumönnum á Gaza-svæðinu til að ganga á milli bols og höfuðs á Hamas-samtökunum, að mati Sveins Rúnars Haukssonar formanns félagsins Ísland-Palestína. Hann segir að árásin í morgun hafi verið yfirvofandi um nokkurt skeið. Það styttist í þingkosningar í Ísrael og frambjóðendur keppast við að lýsa því yfir að þeir vilji eyða Hamas. 27. desember 2008 15:30