Erlent

Telja að einnig hafi átt að gera árás á Bretland

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Greiningardeild bresku lögreglunnar telur að íslamskir öfgamenn hafi lagt á ráðin um svipaða árás í Bretlandi og gerð var í Mumbai á Indlandi í síðustu viku.

Nýlega var maður handtekinn í London sem tilheyrir sömu hryðjuverkasamtökum og lýstu ódæðunum í Mumbai á hendur sér. Var hann handtekinn þegar hann reyndi að kaupa þrjár Uzi-hríðskotabyssur og skotfæri af dulbúnum lögreglumanni.

Maðurinn sagðist hafa í hyggju að kaupa að auki rússneskar sprengjuvörpur og stýriflaugar sem grandað gætu flugvélum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×