Erlent

Snarpir jarðskjálftar í Indónesíu

MYND/AP

Jarðskjálfti sem mældist 6,7 á richter varð á eynni Súmötru í Indónesíu í dag. Skjálftans varð vart víða í suðurhluta landssins.

Upptök skjálftans voru á 23 kílómetra dýpi rúmlega 142 kílómetra suðvestan af borginni Bengkulu. Skömmu síðar reið annar sjálfti yfir og var hann að stærðinni 6,3 á richter.

Enn sem komið er hafa ekki borist fregnar af slysum af fólki eða tjóni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×