Björgvin boðar hispurslaust uppgjör 15. október 2008 14:31 Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra.
Björgvin G. Sigurðsson þakkaði landsmönnum fyrir vel unnið verk á síðustu dögum í ræðu sinni á Alþingi í dag. Hann sagði afrek hafa verið unnin þegar tókst að halda bankakerfinu gangandi þrátt fyrir efnahagshrunið. Á sama tíma hefðu landsmenn allir haldið stillingu sinni og sýnt æðruleysi frammi fyrir vandanum sem við er að etja. Hann segir mikilvægt að hispurslaust uppgjör fari fram. „Þrátt fyrir þessi gífurlegu áföll gekk lífið sinn vanagang sem betur fer," sagði Björgvin og bætti við að allir viti hvað hefði getað gerst. „Auðvitað voru menn hræddir, en við héldum ró okkar og það ber að þakka." Björgvin sagði einnig að stærsta verkefni stjórnvalda á næstunni verði að milda þau áhrif sem bankahrunið hefur á almenning og fyrirtæki í landinu. Hann bætti því við að þrátt fyrir stærð vandamálsins hafi ríkisstjórnin unnið vel saman. „Það er brýnt að ríkisvaldið tryggi það til frambúðar að fjármálalegum stöðugleika verði aldrei teflt í tvísýnu," sagði ráðherran að lokum og bætti við að þar skipti framtíðarreglur um eignarhald banka máli. Að lokum sagði Björgvin mikilvægt að hispurslaust uppgjör fari fram við fortíðina þar sem engu verði skotið undan. „Það er grundvöllurinn að nýju Íslandi. Það er trú mín að þrátt fyrir allt muni Íslendingar rísa upp á ný, miklu fyrr en margir halda núna."
Tengdar fréttir Jóhanna: Endurskoða stjórnarsáttmála með tilliti til ESB ,,Við verðum öll að skoða aðild að Evrópusambandinu með opnum hug," sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í umræðum á Alþingi fyrir stundu. Reyna verði á aðildarviðræður þar sem þjóðin hefur úrslitavald um inngöngu. 15. október 2008 15:25 Aðgerðir Breta mannréttindabrot af verstu sort Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir aðgerðir breskra stjórnvalda gegn íslenskum fyrirtækjum mannréttindabrot af verstu sótt og vill að breska ríkisstjórnin verði kærð hið fyrsta. 15. október 2008 14:20 Ríkisstjórnin kannar grundvöll málshöfðunar á hendur Bretum Ríkisstjórnin hefur falið breskri lögmannssstofu að kanna grundvöll málshöfðunar á hendur breskum stjórnvöldum vegna þeirra aðgerða sem þau gripu til í síðustu viku gegn íslenskum fyrirtækjum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem flutti munnlega skýrslu um stöðu bankakerfisins. 15. október 2008 14:12 Krefst þess að auðmenn komi að uppbyggingunni eða sleppi því að koma heim Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, krefst þess að auðmenn komi heim og leggi þeirri uppbyggingu sem er að hefjast lið. Geri þeir það ekki geti þeir sleppt því að láta sjá sig á götum úti. 15. október 2008 14:03 Hverjir stungu umdeildri skýrslu ofan í skúffu? Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna spurði margra spurninga í snarpri ræðu sinni á Alþingi fyrir stundu. Katrín talaði meðal annars um skýrslu tveggja breskra hagfræðinga sem unnin var fyrir Landsbankann en var stungið ofan í skúffu þar sem hún þótti of viðkvæm. 15. október 2008 15:14 Þorgerður vill læra af reynslu Finna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra, vill að Íslendingar læri af reynslu Finna og fjárfesti í menntun til framtíðar. Þetta sagði hún við umræður um stöðu bankakerfisins á Alþingi í dag. Þorgerður benti á að Finnar hefðu líkt og Íslendingar lent í bankakreppu undir lok síðustu aldar og þá veðjað á menntunþ. Það hefðii borgað sig því vöxtur finnska hagkerfisins hefði verið mikill á síðustu árum þar sem hátækni hefði skipað æ meiri sess. 15. október 2008 15:13 Ríkissaksóknari rannsakar starfsemi bankanna Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið ríkissaksóknara að hafa forystu um að gera skýrslu um stöðu og starfsemi íslenskra peninga- og fjármálastofnana. Þetta kom fram í ræðu ráðherra á Alþingi í dag. 15. október 2008 15:53 Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Sjá meira
Jóhanna: Endurskoða stjórnarsáttmála með tilliti til ESB ,,Við verðum öll að skoða aðild að Evrópusambandinu með opnum hug," sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í umræðum á Alþingi fyrir stundu. Reyna verði á aðildarviðræður þar sem þjóðin hefur úrslitavald um inngöngu. 15. október 2008 15:25
Aðgerðir Breta mannréttindabrot af verstu sort Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir aðgerðir breskra stjórnvalda gegn íslenskum fyrirtækjum mannréttindabrot af verstu sótt og vill að breska ríkisstjórnin verði kærð hið fyrsta. 15. október 2008 14:20
Ríkisstjórnin kannar grundvöll málshöfðunar á hendur Bretum Ríkisstjórnin hefur falið breskri lögmannssstofu að kanna grundvöll málshöfðunar á hendur breskum stjórnvöldum vegna þeirra aðgerða sem þau gripu til í síðustu viku gegn íslenskum fyrirtækjum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem flutti munnlega skýrslu um stöðu bankakerfisins. 15. október 2008 14:12
Krefst þess að auðmenn komi að uppbyggingunni eða sleppi því að koma heim Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, krefst þess að auðmenn komi heim og leggi þeirri uppbyggingu sem er að hefjast lið. Geri þeir það ekki geti þeir sleppt því að láta sjá sig á götum úti. 15. október 2008 14:03
Hverjir stungu umdeildri skýrslu ofan í skúffu? Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna spurði margra spurninga í snarpri ræðu sinni á Alþingi fyrir stundu. Katrín talaði meðal annars um skýrslu tveggja breskra hagfræðinga sem unnin var fyrir Landsbankann en var stungið ofan í skúffu þar sem hún þótti of viðkvæm. 15. október 2008 15:14
Þorgerður vill læra af reynslu Finna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra, vill að Íslendingar læri af reynslu Finna og fjárfesti í menntun til framtíðar. Þetta sagði hún við umræður um stöðu bankakerfisins á Alþingi í dag. Þorgerður benti á að Finnar hefðu líkt og Íslendingar lent í bankakreppu undir lok síðustu aldar og þá veðjað á menntunþ. Það hefðii borgað sig því vöxtur finnska hagkerfisins hefði verið mikill á síðustu árum þar sem hátækni hefði skipað æ meiri sess. 15. október 2008 15:13
Ríkissaksóknari rannsakar starfsemi bankanna Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið ríkissaksóknara að hafa forystu um að gera skýrslu um stöðu og starfsemi íslenskra peninga- og fjármálastofnana. Þetta kom fram í ræðu ráðherra á Alþingi í dag. 15. október 2008 15:53