Segja golf auka lífslíkur verulega Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. júní 2008 13:13 Golfvöllur Sandgerðis. MYND/Oddgeir Karlsson
Golf virðist vera býsna heilnæm íþrótt ef marka má rannsókn sem birtist í Scandinavian Journal of Medicine & Science og bendir til þess að dánartíðni golfiðkenda sé 40% lægri en samanburðarhóps með sömu breytur en þar er gengið út frá aldri, kyni og þjóðfélagslegri stöðu. Telja rannsakendurnir, Anders Ahlbom og Bahman Farahmand við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi, þetta jafngilda fimm ára viðbót við lífslíkur þeirra sem leggja stund á golf. Skýra þeir þetta með því að golf sé íþrótt sem feli í sér mikla útiveru og hreyfingu sem sé hóflegri en tíðkist í mörgum öðrum íþróttum. Einn hringur á golfvelli feli í sér fjögurra til fimm klukkustunda dvöl undir berum himni og sex til sjö kílómetra rösklega göngu. Enn fremur benda rannsakendurnir á að hin félagslega hlið íþróttarinnar reynist mörgum holl. Svo ítarleg er könnun þeirra Ahlboms og Farahmands, sem náði til 300.000 sænskra golfiðkenda, að þeir fullyrða einnig að þeir sem séu með lága forgjöf fái enn meiri heilsubót út úr íþróttinni en hinir sem hærri hafi forgjöfina. Forgjöf er mælikvarði á hæfni iðkandans sem gerir tveimur eða fleirum með ólíka getu kleift að etja kappi svo samanburðarhæft sé. Því lægri sem forgjöfin er því hæfari er iðkandinn. Rökstuðningurinn fyrir því að lægri forgjöf stuðli að auknum lífslíkum er einfaldlega sá að golfiðkandi með lægri forgjöf ver meiri tíma á vellinum. Bloomberg greindi frá.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira