Vilja kurteislegri varnaðarorð á áfengisumbúðir Atli Steinn Guðmundsson skrifar 1. desember 2008 07:27 MYND/News.com.au
Breska heilbrigðisráðuneytið telur að varnaðarorð á áfengisumbúðum mættu vera kurteislegri og hyggst gera bragarbót þar á. Umbætur ráðuneytisins felast í því að bæta orðunum gjörið svo vel, eða please á ensku, við orðsendingar á áfengisflöskum og -dósum sem hvetja neytandann til að drekka eins og manneskja. Sem dæmi má nefna stutt skilaboð á borð við drekktu skynsamlega og ekki aka undir áhrifum. Í ráðuneytinu hafa menn tekið þá afstöðu að framsetning skilaboðanna sé með þeim hætti að verið sé að hasta á neytendur og skipa þeim fyrir. Þetta sé engin hemja í siðuðu vestrænu samfélagi þar sem virðing fyrir manneskjunni og réttindum hennar sé í hávegum höfð. Sitt sýnist þó hverjum því samtök áfengisframleiðenda og bareigenda ráku upp ramakvein þegar þau fengu veður af þessari nýju kurteisi og benda nú sem óðast á að orðalagið sé niðurnjörvað í lögum og reglugerðum sem þeir brjóti þá með því að fara að biðja drykkjumenn að gjöra svo vel og haga drykkju sinni svona eða hinsegin. Þegar falast var eftir áliti skuggaráðherra heilbrigðismála sagði hann ríkisstjórnina vaða reyk ef hún teldi sig geta leyst drykkjuvanda þjóðarinnar með kurteislegri beiðni á umbúðum. Samkvæmt hagstofunni ættu 10 milljónir Breta við alvarlegan áfengisvanda að stríða og það myndi engu breyta að biðja þá að gjöra svo vel að drekka eins og fólk.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira