Erlent

Brenndi eigið hús til grunna

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Fimmtugur Dani í ástarsorg brenndi eigið hús til grunna í bænum Rødovre á Sjálandi í gærkvöldi. Maðurinn hefur verið handtekinn og er nú í haldi lögreglu.

Maðurinn bjó einn í húsinu og breiddist eldurinn svo hratt út að slökkvilið frá tveimur nágrannabæjum fékk ekki við neitt ráðið. Félagar úr björgunarsveit staðarins stóðu brunavakt við rústir hússins í alla nótt vegna hættu á að eldur kviknaði á ný og bærist í hús í nágrenninu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×