Enski boltinn

Ronaldo: Get ekki talist bestur ennþá

NordcPhotos/GettyImages

Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United segist ekki geta gert tilkall til titilsins besti knattspyrnumaður í heimi enn sem komið er.

Ronaldo var stórkostlegur með United í vetur og skoraði 41 mark, en hann telur sig vanta eina rós í hnappagatið til að geta hirt titilinn knattspyrnumaður ársins af Brasilíumanninum Kaka.

"Ég verð að segja að það hefur komið mér á óvart hvað ég hef skorað mikið í vetur, því ég er ekki framherji. En ef maður ætlar sér að verða bestur í heimi, þarf maður að vinna Meistaradeildina og úrvalsdeildina," sagði Ronaldo í samtali við Daily Mail.

"Ég er sigurvegari og mig hefur dreymt um að við vinnum tvöfalt í ár. Það yrði auðvitað rosalegt ef það tækist - en af hverju ekki? Við erum hársbreidd frá því," sagði Portúgalinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×