Enski boltinn

Rio Ferdinand framlengir við United

NordcPhotos/GettyImages

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Manchester United um fimm ár og er því samningsbundinn til ársins 2013.

Ferdinand er 29 ára gamall og hefur verið hjá Rauðu Djöflunum síðan árið 2002.

Þeir Wes Brown og Miachel Carrick hafa þegar samþykkt að skrifa undir samninga við félagið og búist er við að Carrick undirriti sinn fimm ára samning á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×