Enski boltinn

Scolari vill halda Drogba

Elvar Geir Magnússon skrifar
Didier Drogba fellur í jörðina.
Didier Drogba fellur í jörðina.

Luiz Felipe Scolari, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að sóknarmaðurinn Didier Drogba sé í áætlunum sínum. Drogba hefur verið orðaður við Barcelona, AC Milan og Inter.

„Ég hitti Didier á mánudag og við áttum gott spjall. Hann var glaður. Ég er mjög hrifinn af honum sem leikmanni og vill halda honum," sagði Scolari á blaðamannafundi.

Þá er það að frétta að AC Milan segir að félagið sé enn langt frá því að ná samkomulagi við Arsenal um kaupverð á Emmanuel Adebayor. Enska liðið er talið vilja fá 36 milljónir punda fyrir leikmanninn en Milan er ekki til í að greiða þá upphæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×