Liz McCartney hetja ársins hjá CNN Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. nóvember 2008 12:40 Liz McCartney, hetja ársins 2008 að mati CNN. MYND/Michael Caulfield/Wireimage.com
Liz McCartney hefur verið kosin hetja ársins 2008 af bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN. Nafnbótina hlýtur hún fyrir ósérhlífni sína og aðstoð við fórnarlömb fellibylsins Katrínar sem gekk yfir Mississippi, Louisiana og fleiri ríki Bandaríkjanna í ágúst árið 2005. Katrín er einn af fimm mannskæðustu fellibyljunum sem dunið hafa á Bandaríkjunum og kostaði um 500 manns lífið auk þess sem stórtjón varð á 144 ferkílómetra svæði, mest í borginni New Orleans. McCartney hlýtur 100.000 dollara í verðlaunafé en yfir milljón manns tóku þátt í vali hetju ársins á vef CNN sem hægt var að kjósa í sex vikur. „Takið þátt í starfinu með okkur. Ég biðla til þjóðarinnar og heimsbyggðarinnar allrar," sagði McCartney í ávarpi þegar hún veitti verðlaununum viðtöku. „Í sameiningu getum við lyft grettistaki og byggt upp heimili fólksins og líf þess." Meðal þeirra tíu sem flest atkvæði hlutu í kjörinu var Carolyn LeCroy, fyrrverandi fangi sem lagt hefur á sig gríðarmikla vinnu við að færa börnum fanga skilaboð frá því foreldri þeirra sem situr í fangelsi. Hefur LeCroy hljóðritað skilaboð frá meira en 3.000 föngum í Bandaríkjunum og komið til barna þeirra.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira