Erlent

Norður-Kóreumenn hyggjast loka landamærunum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu.
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu.

Norður-Kóreumenn hafa í hyggju að loka landamærunum að Suður-Kóreu algjörlega og gera suðurkóreska starfsmenn iðnfyrirtækja brottræka frá Norður-Kóreu.

Þetta tilkynntu ráðamenn í norðurkóresku höfuðborginni Pyongyang í morgun. Nýlega létu Suður-Kóreumenn af því að veita nágrönnum sínum í norðri mat og hjálpargögn eins og þeir hafa gert um árabil. Var það gert til að þrýsta á norðanmenn að hverfa frá kjarnorkuáætlun sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×