Erlent

Tom Daschle verður ráðherra í ríkisstjórn Obama

Tom Daschle.
Tom Daschle.

Fjölmiðlar vestanhafs fullyrða að Tom Daschle fyrrum leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings verði ráðherra í ríkisstjórn Baracks Obama sem sver embættiseið 21. janúar.

Daschle var einn af kosningaráðgjöfum Obama í forvali Demókrataflokksins og í sjálfum forsetakosningunum. Búist er við því því að hann verði heilbrigðisráðherra.

Áður hefur komið fram að Eric Holder verður líklega dómsmálaráðherra. Hillary Clinton er orðuð við embætti utanríkisráðherra og þá er jafnvel búist við því að Robert Gates, núverandi varnarmálaráðherra, sitji áfram.

Daschle varð fyrir barðinu á sigri repúblíkana í þingkosningunum árið 2004 en þá tapaði hann tapaði fyrir repúblíkananum John Thune og varð fyrsti leiðtogi stjórnmálaflokks í öldungadeildinni til að falla í kosningum í rúma hálfa öld eða frá árinu 1952.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×