Breska lögreglan fær 10.000 stuðbyssur Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. nóvember 2008 07:27 MYND/Daily Mail
Lögreglan í Bretlandi tekur von bráðar í notkun tíu þúsund rafstuðbyssur. Það er óhætt að segja að þeir verði í stuði, lögregluþjónarnir 30.000 í 43 lögregluumdæmum Bretlands sem fá innan tíðar í hendur rafstuðbyssur til að beita gegn hættulegum eða vopnuðum brotamönnum framtíðarinnar. Innanríkisráðherrann Jacqui Smith mun í dag kynna áætlunina sem gengur út á að verja átta milljónum punda, jafnvirði tæplega 1,7 milljarða króna, til kaupa á 10.000 slíkum vopnum sem hafa verið umdeild, meðal annars hér á landi, vegna hugsanlegra lífshættulegra eiginleika sem sum mannréttindasamtök láta í veðri vaka að tækin búi yfir. Framleiðendur og lögregluyfirvöld vilja þó meina að þau 50.000 volt, sem skotmark rafstuðbyssu verður fyrir, séu alla jafna skaðlaus en nægi þó til að lama alla vöðvastarfsemi á meðan viðkomandi er settur í járn. Innanríkisráðherrann segist vera stolt af því að breska lögreglan sé eitt fárra lögregluliða heimsins sem gangi ekki með byssur á sér nema í sérstökum aðgerðum og þannig vilji hún halda því. Landssamband lögreglumanna í Bretlandi fagnar þessum nýja útbúnaði og talsmaður þess segir rafstuðbyssurnar vera lausn sem feli í sér hættulitla leið til að fást við aðstæður þar sem lögreglumönnum sé hætta búin.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Sjá meira