Ramos neitar að örvænta 16. september 2008 10:19 nordicphotos/ getty images
Juande Ramos, knattspyrnustjóri Tottenham, kallar eftir þolinmæði stuðningsmanna liðsins. Tottenham tapaði fyrir Aston Villa á heimavelli í gær og er í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar. Þetta er versta byrjun Tottenham í sögu úrvalsdeildarinnar og stuðningsmenn liðsins hefðu eflaust kosið að sleppa við að byrja leiktíðina rétt eins og þá síðustu, þegar Martin Jol var rekinn eftir nokkra leiki vegna skelfilegs gengis liðsins. Juande Ramos biður um þolinmæði því hann sé enn að stilla saman strengi með fjölda nýrra leikmanna í sínum röðum. "Við erum bara búnir að spila fjóra leiki og leiktíðin er rétt að hefjast. Við vorum með þrjá leikmenn í hópnum í kvöld sem varla höfðu æft með okkur. Við erum eftir á í undirbúningnum og eigum erfitt tímabil fyrir höndum, en það eru nógu góðir menn í þessu liði til að koma því á rétta braut," sagði Ramos. Hann vildi ekki kenna brasilíska markverðinum Heurelho Gomes um 2-1 tapið fyrir Aston Villa í gær, þó Gomes hafi gert slæm mistök í síðara marki Villa. "Ég er alltaf reiður eftir svona leiki, bæði við sjálfan mig og leikmennina. Ég kenni markverðinum um það sem hann gerði rangt rétt eins og öðrum leikmönnum, en hann hélt okkur líka inni í leiknum með góðri markvörslu og mér fannst hann frábær fyrir utan þetta atvik," sagði Ramos.
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira