Enski boltinn

Stoke hélt jöfnu á Anfield

Matthew Etherington og David di Michele voru hetjur West Ham í dag
Matthew Etherington og David di Michele voru hetjur West Ham í dag AFP

Liverpool var að láta sér lynda markalaust jafntefli gegn nýliðum Stoke City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liverpool átti 27 marktilraunir gegn aðeins þremur hjá gestunum og mark fyrirliðans Steven Gerrard í fyrri hálfleik var dæmt af vegna rangstöðu.

Eins og lesa má út úr tölfræðinni hafði Liverpool mikla yfirburði í leiknum, en tókst ekki að leggja þrjóska nýliðana. Stoke er nú komið með 4 stig í deildinni, en er enn á fallsvæðinu. Liverpool er í efsta sæti deildarinnar með 11 stig en næstu lið, Chelsea og Arsenal, eiga leik til góða.

West Ham byrjaði vel í stjórnartíð Gianfranco Zola og vann verðskuldaðan 3-1 sigur á heillum horfnu liði Newcastle á Upton Park.

Ítalinn David di Michele átti stórleik og skoraði tvö mörk og lagði upp þriðja markið fyrir Matthew Etherington. Michael Owen minnkaði muninn fyrir Newcastle en lengra komst liðið ekki. West Ham skaust með sigrinum í fjórða sæti deildarinnar en Newcastle er í næstneðsta sæti með aðeins fjögur stig.

Loks vann Blackburn mikilvægan 1-0 sigur á Fulham eftir þungan skell gegn Arsenal í síðustu umferð. Það var Matt Derbyshire sem skoraði sigurmark Blackburn í leiknum. Liðin sitja bæði um miðja deild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×