Brottrekstur Bifrastardrengsins var ekki mistök Breki Logason skrifar 3. júlí 2008 14:21 Ágúst Einarsson rektor á Bifröst
Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst segir það ekki hafa verið mistök að vísa nemendunum sem urðu uppvísir að fíkniefnamisferli frá skólanum, þrátt fyrir að komið hafi í ljós að einn þeirra væri ekki eigandi fíkniefnanna. Í síðustu viku felldi úrskurðarnefnd í kærumálum háskólanema ákvörðunina um brottrekstur eins þeirra úr gildi. Ágúst segir skólann vera að skoða það mál. Í febrúar á þessu ári réðst lögreglan með hjálp sérsveitar ríkislögreglustjóra til atlögu í þremur íbúðum á Bifröst. Þrír nemendur voru handteknir grunaðir um að hafa fíkniefni undir höndum. Eftir mikla leit fundust 0,5 grömm af fíkniefnum. Daginn eftir voru nemendurnir, tveir piltar og ein stúlka, reknir úr skólanum. Í íbúð annars piltanna fannst lítilræði af fíkniefnum sem hann kannaðist ekki við. Tæplega viku síðar kom samnemendi hans á lögreglustöðina í Borgarnesi, að eigin frumkvæði, og játaði að eiga fíkniefnin. Þrátt fyrir þessar upplýsingar staðfesti háskólaráð ákvörðun rektors um að vísa piltinum frá skólanum. Í kjölfarið kærði hann úrskurðinn til úrskurðarnefndar kærumála háskólanema. „Nei, nei, þessi ákvörðun var tekin með réttmætum hætti og ekkert athugavert við hana," segir Ágúst aðspurður um hvort það hafi verið mistök að reka piltinn úr skólanum. Hann bendir á að tvö af þessum tilfellum hafi farið fyrir nefndina og í öðru þeirra hafi ákvörðun háskólaráðs verið staðfest. „Í hinu tilfellinu var það ekki gert vegna formgalla við ákvörðun okkar. Við erum að skoða það mál," sagði Ágúst sem að öðru leyti vildi lítið tjá sig um málið. Í grein sem Einar Hugi Bjarnason lögmaður piltsins skrifar í Fréttablaðið í dag fer hann yfir niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar. „Í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar er tekið fram að þegar ákvörðun háskólaráðs var tekin hafi rannsókn lögreglu vart verið hafin og ekki hafi verið tekin eiginleg lögregluskýrsla af kæranda. .........að mati nefndarinnar hefði þurft að rannsaka aðild kæranda að málinu betur áður en ákvörðun um brottvísun úr skóla var tekin og beita þá vægari úrræðum en því sem var mest íþyngjandi fyrir kæranda, hafi skólinn talið ástæðu til að grípa til viðurlaga gagnvart kæranda," skrifar Einar í greininni. Einnig kemur fram í grein Einars að ákvörðunin sem nú hefur verið felld úr gildi hafi verið gríðarlega íþyngjandi fyrir piltinn og kippti fótunum undan ungum manni sem hafði miðað allar sínar framtíðaráætlanir við það að ljúka námi við Háskólann á Bifröst. „Kærandi varð auk þess fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni vegna brottvísunarinnar svo ekki sé minnst á þá andlegu erfiðleika sem hann og fjölskyldu hans hafa þurft að glíma við í kjölfarið."
Tengdar fréttir „Ég líð ekkert svona á mínu svæði“ Þrír nemendur, tveir menn og ein kona, voru rekin úr Háskólanum á Bifröst í dag í kjölfar þess að fíkniefni fundust í íbúðum þeirra á háskólasvæðinu. Þetta staðfestir Ágúst Einarsson, rektor á Bifröst, í samtali við Vísi. „Ég líð ekkert svona á mínu svæði," segir Ágúst. 29. febrúar 2008 15:22 Tekið hart á fíkniefnamáli á Bifröst „Það verður tekið hart á þessu máli því við líðum ekki þennan ófögnuð hérna," segir Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst um fíkniefnafund lögreglunnar í nemendaíbúðum við háskólann í gærkvöldi. 29. febrúar 2008 09:32 Fá ekki að sjá fjármálaupplýsingar meints fíkniefnasala Hæstiréttur hafnaði á miðvikudaginn kröfu sýslumanns um aðgang að upplýsingum um fjármál manns sem er nemandi við Háskólann á Bifröst. 25. apríl 2008 11:49 Fíkniefni fundust í nemendaíbúðum Háskólans á Bifröst Fjölmennt lögreglulið úr Borgarfirði, Dölum, fíkniefnalögreglunni í Reykjavík og úr sérsveit ríkislögreglustjóra, ásamt tollgæslumönnum og þremur fíkniefnahundum, gerði húsleilt í þremur nemendaíbúðum við Háskólann á Bifröst í gærkvöldi. 29. febrúar 2008 07:25 Kæra rektor og háskólaráð Tveir af þremur nemendum sem vikið var úr Háskólanum á Bifröst um mánaðarmótin eftir að vopnaðir lögreglumenn gerðu húsleit í íbúðum þeirra ætla að kæra Ágúst Einarsson rektor til siðanefndar háskólans. Þá ætla þeir líka að kæra staðfestingu háskólaráðs á brottvísun þeirra úr skólanum. 11. mars 2008 16:00 Fíkniefnamagnið var 0,5 grömm Fíkniefnamagnið sem fannst á heimavist nemenda í Háskólanum á Bifröst nemur einungis 0,5 grömmum, samkvæmt heimildum Vísis. 29. febrúar 2008 17:58 Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira
„Ég líð ekkert svona á mínu svæði“ Þrír nemendur, tveir menn og ein kona, voru rekin úr Háskólanum á Bifröst í dag í kjölfar þess að fíkniefni fundust í íbúðum þeirra á háskólasvæðinu. Þetta staðfestir Ágúst Einarsson, rektor á Bifröst, í samtali við Vísi. „Ég líð ekkert svona á mínu svæði," segir Ágúst. 29. febrúar 2008 15:22
Tekið hart á fíkniefnamáli á Bifröst „Það verður tekið hart á þessu máli því við líðum ekki þennan ófögnuð hérna," segir Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst um fíkniefnafund lögreglunnar í nemendaíbúðum við háskólann í gærkvöldi. 29. febrúar 2008 09:32
Fá ekki að sjá fjármálaupplýsingar meints fíkniefnasala Hæstiréttur hafnaði á miðvikudaginn kröfu sýslumanns um aðgang að upplýsingum um fjármál manns sem er nemandi við Háskólann á Bifröst. 25. apríl 2008 11:49
Fíkniefni fundust í nemendaíbúðum Háskólans á Bifröst Fjölmennt lögreglulið úr Borgarfirði, Dölum, fíkniefnalögreglunni í Reykjavík og úr sérsveit ríkislögreglustjóra, ásamt tollgæslumönnum og þremur fíkniefnahundum, gerði húsleilt í þremur nemendaíbúðum við Háskólann á Bifröst í gærkvöldi. 29. febrúar 2008 07:25
Kæra rektor og háskólaráð Tveir af þremur nemendum sem vikið var úr Háskólanum á Bifröst um mánaðarmótin eftir að vopnaðir lögreglumenn gerðu húsleit í íbúðum þeirra ætla að kæra Ágúst Einarsson rektor til siðanefndar háskólans. Þá ætla þeir líka að kæra staðfestingu háskólaráðs á brottvísun þeirra úr skólanum. 11. mars 2008 16:00
Fíkniefnamagnið var 0,5 grömm Fíkniefnamagnið sem fannst á heimavist nemenda í Háskólanum á Bifröst nemur einungis 0,5 grömmum, samkvæmt heimildum Vísis. 29. febrúar 2008 17:58