Grétar Rafn ofar en Terry og Lescott Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. desember 2008 16:42 Grétar Rafn í leik með Bolton. Nordic Photos / Getty Images
Grétar Rafn Steinsson er á 21. sæti lista Actim sem heldur utan um tölfræði allra leikmanna í ensku úrvalsdeildinni og hoppar upp um tólf sæti á milli lista. Grétar Rafn er næstefsti leikmaður Bolton á listanum en Gary Cahill er í þrettánda sæti. Hann skýtur mörgum af þekktari varnarköppum deildarinnar ref fyrir rass, svo sem John Terry hjá Chelsea og Joleon Lescott, leikmanni Everton sem kom næstir á listanum. Enn neðar á listanum má finna varnarmenn menn eins og Gael Clichy, Nemanja Vidic og Rio Ferdinand. Nicolas Anelka, leikmaður Chelsea, er í efsta sæti listans með 407 stig og næstur kemur Gabriel Agbonlahor, Aston Villa, með 361 stig. Frank Lampard er svo með 351 stig en þetta eru þeir einu sem eru með meira en 300 stig. Grétar Rafn er með 234 stig. Actim heldur einnig utan um tölfræðina í ensku B-deildinni og þar komst Ívar Ingimarsson, leikmaður Reading, einnig á lista efstu 100 manna. Ívar er í 47. sæti listans með 247 stig en liðsfélagi hans, Kevin Doyle, er þar efstur á lista með 521 stig. Síðasti listinn fyrir B-deildina var gefinn út þann 19. desember og í þeirri lotu fékk Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Burnley, flest stig allra leikmanna fyrir einn leik eða 48 talsins. Stigin fékk hann fyrir leik Burnley gegn Southampton en hann skoraði tvö mörk í leiknum. Hann er í 186. sæti listans.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Jesus sveik lærisveininn Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Sjá meira