Skaðabótakrafan á West Ham hækkuð? 10. október 2008 21:18 Tevez vó þungt í fallbaráttu West Ham á sínum tíma NordicPhotos/GettyImages
Nokkrir breskir fjölmiðlar halda því fram í dag og í kvöld að forráðamenn Sheffield United ætli að hækka umtalsvert skaðabótakröfu sína á hendur West Ham Tevez-málinu. Sheffield United fór á sínum tíma fram á 30 milljónir punda í bætur eftir að sannað þótti að West Ham hefði teflt fram ólöglegum leikmanni í Carlos Tevez leiktíðina 2006-07. Því er nú haldið fram að forráðamenn Sheffield United hafi ákveðið að fara fram á 50 milljónir punda í stað 30 eftir að hafa ráðfært sig við lögmenn. Haft er eftir stjórnarformanni Sheffield að hann sé enn ekki búinn að ákveða nákvæmlega hversu há skaðabótakrafan verði, en hann mun vera til í að dreifa greiðslunum á langan tíma. Fleiri lögsóknir Málið fór fyrir gerðardóm í síðasta mánuði og þar kom fram að West Ham gæti ekki áfrýjað niðurstöðunni til Afrýjunardómstóls Íþróttamála. Málið verður þó tekið fyrir a ný í sérstökum gerðardómi í byrjun næsta árs. Það er ekki aðeins Sheffield United sem hefur lögsótt West Ham, heldur hafa nokkrir leikmenn og m.a. þáverandi knattspyrnustjóri Sheffield talað um að höfða einkamál gegn West Ham ef dómur fellur Sheffield í hag. West Ham til sölu? Breskir fjölmiðlar fullyrða líka sumir hverjir að Björgólfur Guðmundsson eigandi West Ham sé kominn í klípu vegna hrunsins á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum. Því er haldið fram að hópar fjárfesta séu að fylgjast með þróun mála og til dæmis segja Independent og Daily Mail að Indverjinn Anil Ambani, stjötti ríkasti maður heims, sé að íhuga að kaupa West Ham.
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira