Helgin á Englandi - Myndir Elvar Geir Magnússon skrifar 15. september 2008 18:00
Það var tíðindamikil helgi í enska boltanum en þar bar helst stórleikur Liverpool og Manchester United. Þá bauð Emmanuel Adebayor upp á þrennu og Robinho skoraði fyrir Manchester City gegn Chelsea þó það hafi ekki dugað til að ná í stig. Ljósmyndarar Getty Images voru á öllum leikjunum og með því að smella á myndaalbúmið hér að neðan er hægt að sjá það helsta frá helginni í máli og myndum. Rafael Benítez og Sir Alex Ferguson takast í hendur eftir að Liverpool vann 2-1 sigur á Manchester United á laugardag. Sir Alex hefur alveg verið hressari.Ryan Babel sést hér fagna sigurmarkinu gegn United en hann kom inn sem varamaður. Stuðningsmenn Liverpool voru ekki að hata þetta.Wes Brown og Edwin van der Saar vilja líklega gleyma þessum leik sem fyrst.Robinho kom Manchester City yfir gegn Chelsea í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Það dugði þó skammt því Chelsea skoraði þrívegis áður en leikurinn var úti.John Terry fékk að líta mjög umdeilt rautt spjald í leiknum gegn City og á yfir höfði sér þriggja leikja bann. Leikmenn Chelsea mótmæltu dómi Headline Halsey kröftuglega.Gianfranco Zola sá nýju lærisveinana í West Ham tapa fyrir West Bromwich Albion en var óvenju hress. Zola tók formlega við Hömrunum eftir leikinn.Emmanuel Adebayor skoraði þrennu fyrir Arsenal sem fór illa með Paul Ince og félaga í Blackburn.Xisco skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Newcastle en fékk lítið að fagna þar sem liðið tapaði fyrir Hull 1-2.Yakubu og Cahill skoruðu báðir fyrir Everton sem vann Stoke.Defoe var í stuði með Portsmouth og skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Middlesbrough.Grétar Rafn Steinsson og félagar í Bolton þurftu að játa sig sigraða gegn Fulham.Titus Bramble bauð upp á sjálfsmark þegar Wigan og Sunderland gerðu 1-1 jafntefli.
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira