Erlent

Þýskir hryðjuverkamenn nota stolin dönsk vegabréf

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
MYND/SK

Stolin dönsk vegabréf eru í æ ríkari mæli notuð af þýskum hryðjuverkamönnum og eru sum þeirra komin verulega til ára sinna þar sem þeim var stolið á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.

Meðal annarra eru það liðsmenn hinna þýsku Baader Meinhof-öfgasamtaka sem notfæra sér stolin vegabréf og greinir danska blaðið Jyllands-Posten frá því að dönsk kona hafi búið með Þjóðverja nokkrum árum saman án þess að vita nokkurn tímann hans rétta nafn.

Þjóðverjinn, sem starfaði með Baader-Meinhof, hafði einfaldlega orðið sér úti um stolið vegabréf og þar sem hann talaði ágæta dönsku komst ekki upp um hans réttu persónu fyrr en alþjóðalögreglan Interpol bar fingraför hans saman við fingraför á byssu sem notuð var til að skjóta danskan lögregluþjón til bana í ráni fyrir nokkrum árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×