Erlent

Árásir Ísraela halda áfram - 270 látnir

Ísraelsher hélt áfram að varpa sprengjum á Gaza í morgun og nú hafa um 270 manns fallið og yfir sex hundruð særst frá því árásirnar hófust í gærdag.

Gerðar hafa verið yfir þrjátíu árásir á Gaza það sem af er degi, en stuðningsmenn Hamas samtakanna hafa einnig skotið um tíu eldflaugum yfir til Ísraels, en án þess að valda þar manntjóni í dag, en í gær féll einn maður í slíkri eldflaugaárás.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman í gærkvöldi og lýsti áhyggjum sínum af ástandinu og hvatti til vopnahlés.

Árásir Ísraelsmann miða aðallega á skotmörk sem þeir telja hernaðarlega mikilvæg, eins og þjálfunarstaði Hamasliða, lögreglustöðvar og stjórnsýslubyggingar. Engu að síður hefur nokkur fjöldi óbreyttra borgara fallið og særst. Þá hafa Ísraelsmenn stillt upp skriðdrekum skammt utan við Gaza, til að vera reiðubúnir í landhernað, sem þó er talinn ólíklegur enn sem komið er.

Kosningar eru í Ísrael í febrúar og telja sumir fréttaskýrendur að það kunni að hafa áhrif á ákvarðanir stjórnmálamanna þar um hernaðinn á Gaza.

Forseti Írans hefur fordæmt árásir Ísraelsmanna og segir þær glæpsamlegar. Hann sagði að Íranar myndu standa við bakið á Palestínumönnum og hvatti alþjóðasamfélagið til að gera slíkt hið sama.




Tengdar fréttir

120 látnir eftir loftárásir Ísraela

Rúmlega 120 Palestínumenn eru látnir og yfir 200 særðir eftir að Ísraelar hófu röð loftárása á Gaza-ströndina í morgun. Tugum flugskeyta hefur verið skotið á skotmörk á svæðinu, þar á meðal lögreglustöð. Gaza-svæðið hefur verið á yfirráðasvæði Hamas-samtakanna frá í júní 2007.

Telur að umheimurinn hafi skilning á aðgerðum Ísraela

Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, telur að Telur að umheimurinn hafi skilning á aðgerðum Ísraela á Gazasvæðinu. Tala fallinna í loftárásum Ísraelshers á Gaza í dag fer stighækkandi og nú er talið að um tvö hundruð manns hafi fallið og á fjórða hundrað manns hafi særst.

Egyptar fordæma loftárásir Ísraela - 155 látnir

Stjórnvöld í Kaíró fordæma loftárásir Ísraela í harðorði yfirlýsingu sem ríkisfréttastöðin Mena birti fyrir stundu. Egyptar telja að Ísraelar beri fulla ábyrgð á dauða yfir 155 Palestínumanna á Gaza-svæðinu í morgun.

Ingibjörg gagnrýnir Ísraela vegna loftárása á Gaza

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisràðherra, telur hernaðaraðgerðir Ísraels à Gazaströndinni í dag óverjandi. Þó að Ísrael standi frammi fyrir öryggisógn og að àkvörðun Hamas um ad segja sig frá vopnahléi sé röng verða viðbrögð að vera í samræmi við hættu eins og alþjóðleg mannúðarlög krefjast, segir Ingibjörg í yfirlýsingu vegna atburða dagsins.

Árásum Ísraela mótmælt í Líbanon og Egyptalandi

Gífurleg reiðialda fer um hinn arabíska heim vegna fordæmalausra loftárása Ísraelshers á Gaza í dag. Árásunum var meðal annars mótmælt í Líbanon og Egyptalandi. Arababandalagið krafðist þess í dag að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði nú þegar kallað saman til að taka á málinu.

Fjöldamorð framin til að uppræta Hamas - 195 látnir

Ísraelar fremja fjöldamorð á Palastínumönnum á Gaza-svæðinu til að ganga á milli bols og höfuðs á Hamas-samtökunum, að mati Sveins Rúnars Haukssonar formanns félagsins Ísland-Palestína. Hann segir að árásin í morgun hafi verið yfirvofandi um nokkurt skeið. Það styttist í þingkosningar í Ísrael og frambjóðendur keppast við að lýsa því yfir að þeir vilji eyða Hamas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×