Erlent

Stórkommar flykkjast til Venesúela

Óli Tynes skrifar
Hvert er hann aða fara með mig? Raul Castro og Hugo Chavez.
Hvert er hann aða fara með mig? Raul Castro og Hugo Chavez. MYND/AP

Það er stutt stórra komma í milli í Venesúela þessa dagana. Dmitry Medvedev forseti Rússlands var þar um daginn til þess að heilsa upp á sinn góða vin hinn Ameríkuhatandi Viktor Chavez forseta landsins.

Medvedev var þar í heimsókn í tengslum við heimsókn rússneskrar flotadeildar til landsins en hún hélt heræfingar með flota Venesúela. Einnig komu þangað langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar.

Nú er svo þar í heimsókn Raul Castro frá Kúbu sem tók við leiðtogaembætti af bróður sínum Fidel. Þeir Fidel og Chavez eru miklir vinir og Raul vill tryggja að samband landanna verði áfram gott þótt stóri bróðir hans sé sestur í helgan stein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×