Varar andstæðinga Bandaríkjanna við 14. desember 2008 08:00 Obama tekur við embætti forseta Bandaríkjanna hinn 20. janúar, eða eftir rúman mánuð.
Robert Gates, varnarmálaráðaherra Bandaríkjanna, hefur varað andstæðinga Bandaríkjanna við því að efna til vandræða í von um að hrista upp í ríkisstjórn Baracks Obama. „Hver sá sem heldur að næstu mánuðir henti vel til að reyna á þolrif nýju stjórnarinnar er að gera alvarleg mistök,“ sagði Gates á ráðstefnu með leiðtogum ríkja í Persaflóa í Bahrain. „Obama forseti og hans þjóðaröryggislið, þar á meðal ég, verður tilbúið til að verja hagsmuni Bandaríkjanna og vinaþjóða okkar um leið og hann tekur við embætti 20. janúar.“ Joe Biden, væntanlegur varaforseti Bandaríkjanna, varaði við því í kosningaherferðinni í haust að reynt yrði að prófa Obama með erfiðu alþjóðlegu vandamáli um leið og hann tæki við embætti, rétt eins og gert var með John F. Kennedy, fyrrum Bandaríkjaforseta, og Kúbudeiluna. Á fundinum í Bahrain sagði Robert Gates að málefni Mið-Austurlanda og Persaflóa verði áfram í brennidepli hjá Bandaríkjastjórn. Hann neitaði því jafnframt að Bandaríkjamenn ætluðu að koma stjórnvöldum í Íran frá völdum. Engu að síður vildu þeir að Íranar endurskoðuðu stefnu sína og hegðuðu sér öðruvísi. Gates hefur fengið mikið lof bæði frá demókrötum og repúblikönum fyrir það hvernig hann hefur tekið á málum varðandi aukinn fjölda hermanna í Írak. Einnig hefur hann fengið lof fyrir dvínandi ofbeldi í landinu. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hnífjafnt til hægri og vinstri Innlent Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Innlent Fleiri fréttir Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Sjá meira