Jacqui Smith er verndari gleðistunda Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. desember 2008 08:26 Innanríkisráðherrann Jacqui Smith. Líklegt er að einhverjir breskir öldurhúsagestir drekki hennar skál á svokölluðum „happy hours“ næstu daga.
Bresk öldurhús sleppa naumlega við að svonefndar gleðistundir verði afnumdar með lögum þar í landi. Óminnishegri heitir sá er yfir öldrum þrumir, hann stelur geði guma. Þannig greina Hávamál frá fuglinum óminnishegra sem rænir drykkjumenn viti sínu og skynsemi. Í gær var greint frá miklum úlfaþyt meðal breskra ráðamanna um kurteisi í aðvörunum á áfengisumbúðum. Nú er svo komið að breskir siðgæðisverðir vilja banna gleðistundir eða happy hours á þarlendum börum við ærið misjafnar undirtektir. Öllum að óvörum stígur innanríkisráðherrann Jacqui Smith fram í dag og tilkynnir að ekkert verði af slíku banni. Þess í stað verði komið á málamiðlun þess efnis að öldurhúsunum verði ekki leyfilegt að auglýsa tilboð um að gestirnir geti gusað í sig að vild sólskininu sem borið er fram í glösum gegn fyrirframákveðinni upphæð, til dæmis 10 breskum pundum. Ráðherrann telur skynsamlegra að veita afslátt meðan á gleðistundinni stendur án þess þó að gefa út ákveðna upphæð. Heimildamaður Telegraph innan breska innanríkisráðuneytisins sagði einfaldlega: „Þrír fjórðu hlutar fólks drekka eins og fólk. Hinir gera það ekki og það er það sem við þurfum að bregðast við."
Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Innlent Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Innlent Fleiri fréttir Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Sjá meira