Erlent

Fimm friðargæsluliðar létust

Fimm spænskir friðargæsluliðar frá Sameinuðu þjóðunum fórust í sprengingu í gær í suðurhluta Líbanon. Þrír aðrir særðust.

Bráðabirgðaherlið Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, UNIFIL, staðfesti að sprengingin hefði verið af mannavöldum. Jarðsprengja eða hryðjuverk eru talin líklegustu orsakirnar.

Þetta er í fyrsta sinn sem ráðist er á sveitir UNIFIL síðan þær voru styrktar í kjölfar innrásar Ísraelshers í landið síðasta sumar. Alls 13 þúsund hermenn frá 30 þjóðum SÞ og 15 þúsund líbanskir hermenn verja svæðið við landamæri ríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×