Erlent

Meirihluti vill greiða atkvæði

Mikill meirihluti Dana vill að ákvörðun um nýjan sáttmála Evrópusambandsins verði tekin með þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjötíu prósent Dana voru á þessari skoðun, nítján prósent töldu ekki þörf á atkvæðagreiðslu og hlutlausir voru ellefu prósent.

Í viðtali við Berlingske Tidende sagði Rune Lund í Einingarlistanum þessar niðurstöður ekki gefa kost á öðru en að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um málið. „Það er ekki einungis vegna kröfu fólksins um atkvæðagreiðslu heldur líka vegna þess að samningurinn felur í sér að Evrópusambandið öðlast meira vald á meðan völd sérhvers lands minnka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×