Erlent

Þjóðernisráðuneyti mótmælt

Nærri 200 prófessorar, listamenn og fleiri þekktir einstaklingar, sumir við háskóla í Bandaríkjunum, Bretlandi og Japan, hafa skrifað undir áskorun til Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, þar sem stofnun nýs ráðuneytis innflytjenda- og þjóðernismála er mótmælt.

Í áskoruninni, sem var birt í vinstriblaðinu Libération, er farið fram á að nafni ráðuneytisins verði breytt, þar sem það gefi í skyn að innflytjendur séu vandamál, og víðtækar valdheimildir þess verði skornar niður.

Sarkozy gerði þjóðernismál að áherslumáli í kosningabaráttunni og vann þar með fylgi kjósenda yst á hægri vængnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×