Erlent

Hundruð látnir í Pakistan

Yfir tvö hundruð og þrjátíu manns höfðu fundist látnir eftir ofsaveður og miklar rigningar í Pakistan í gær. Stormurinn rústaði hús og felldi niður rafmagnslínur í borginni Karachi.

Flestir hinna látnu létust í byggingum sem hrundu, vegna raflosts eða urðu fyrir trjám sem stormurinn hafði rifið með sér. Fjöldi fólks er slasaður og neyðarástandi hefur verið lýst yfir á spítölum borgarinnar.

Monsoon-tímabilið er hafið í Pakistan og má búast við talsvert meiri rigningu á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×