Erlent

Veiran fannst í dauðum fuglum

Sjö dauðir fuglar greindust með fuglaflensuveiruna H5N1 í Bæjaralandi um helgina og hafa þýsk yfirvöld varað fólk við því að hleypa hundunum sínum lausum. Þetta er í fyrsta skipti á þessu ári sem veiran greinist í landinu. Í fyrra greindist fuglaflensa í þrettán Evrópulöndum og fyrr í þessum mánuði greindist hún á bóndabæ í Tékklandi og var sex þúsund kalkúnum slátrað þar.

H5N1-veiran hefur drepið um 190 manns um allan heim en flestir hinna látnu smituðust af fuglum í Asíu. Sérfræðingar óttast að veiran gæti stökkbreyst þannig að hún smitaðist auðveldlega á milli manna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×