Erlent

Segir trúnni hafa verið rænt

Bandaríski forsetaframbjóðandinn segir hægrisinnaða evangelíska kristna leiðtoga notfæra sér trúarlegar skoðanir fólks á slæman hátt.
Bandaríski forsetaframbjóðandinn segir hægrisinnaða evangelíska kristna leiðtoga notfæra sér trúarlegar skoðanir fólks á slæman hátt.

Barack Obama, einn frambjóðenda demókrata til forsetaembættis, gagnrýnir hægrisinnaða evangelíska kristna leiðtoga fyrir að nýta sér ólíkar trúarlegar skoðanir í þeim tilgangi að valda deilum og klofningu í samfélaginu.

Obama talaði á kirkjuráðstefnu á laugardaginn. Hann sagði trúnni hafa verið rænt og að hann saknaði þeirra daga þegar hún var notuð til þess að færa fólkið saman.

„Þeir þreytast ekki á að segja evangelískum kristnum að demókratar beri ekki virðingu fyrir kirkjunni. Á meðan gefa þeir restinni af þjóðinni þau skilaboð að einu málin sem skipti trúrækna Ameríkana máli séu fóstureyðingar, hjónabönd samkynhneigðra og skólabænir,“ sagði Obama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×