Erlent

Nýr leiðtogi lofar umbótum

Blair víkur fyrir Brown. Nýjum leiðtoga Verkamannaflokksins bíður mikið verk, en fylgi flokksins hefur dalað á undanförnum árum.
Blair víkur fyrir Brown. Nýjum leiðtoga Verkamannaflokksins bíður mikið verk, en fylgi flokksins hefur dalað á undanförnum árum. MYND/AFP

Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, tók í gær við sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins af Tony Blair á fundi flokksins í Manchester. Á miðvikudaginn tekur hann við embætti forsætisráðherra landsins af Blair.

Brown lofaði umbótum heima fyrir og nýrri stefnu í utanríkismálum, sem byggðist á umræðu frekar en hervaldi.

„Utanríkisstefnan mun endurspegla þann sannleika að til að einangra og sigra hryðjuverkamenn og öfgahópa þarf meira til en hervald,“ sagði Brown í jómfrúarræðu sinni sem leiðtogi flokksins.

„Þetta verður barátta hugmynda og hugsjóna sem verður háð á næstu árum og unnin af heilum hug hér heima og um allan heim.“

Óvinsældir Íraksstríðsins og þátttaka Breta í því hafa skaðað vinsældir Blair undanfarin ár. Brown viðurkenndi mistökin í stríðsrekstrinum og lofaði að lærdómur yrði dreginn af þeim.

„Íraksstríðið hefur valdið sundrung, bæði í flokknum og í landinu,“ sagði Brown og bætti því við að friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum yrðu sífellt meira aðkallandi.

Tony Blair kynnti Brown til leiks í kveðjuræðu sinni og sagði þennan vin sinn til 20 ára hafa alla burði til að verða úrvals forsætisráðherra.

„Ég veit að hann mun gera sitt besta í þjónustu sinni við landið og ég veit af orðspori hans sem fjármálaráðherra, að hans besta er eins gott og það gerist,“ sagði Blair.

Brown lofaði á móti frammistöðu Blairs í ræðu sinni og hrósaði honum sérstaklega fyrir að koma á friði á Norður-Írlandi, sem hann kallaði sögulegt afrek.

Harriet Harman dómsmálaráðherra vann í baráttunni við fimm aðra þingmenn um hver tæki við af John Prescott sem varaleiðtogi flokksins. Um 3,5 milljónir flokksmanna og félagsmanna verkalýðsfélaga kusu um varaleiðtoga.

Hundruð mótmælenda söfnuðust saman nálægt fundinum og mótmæltu utanríkisstefnu Blair.

„Við erum hérna til að kveðja hættulegasta og herskáasta forsætisráðherra í samtímasögu Bretlands,“ sagði Andrew Murrey, formaður Stop The War-hreyfingarinnar.

Brown hefur sagst munu leyfa á ný mótmæli fyrir utan þinghúsið, en Blair bannaði það í forsætisráðherratíð sinni.

Fyrsta þolraun nýs leiðtoga verða næstu þingkosningar, sem haldnar verða árið 2009 eða 2010.


Tengdar fréttir

Brown er maður sígildra gilda

„Stemningin er ansi góð, þeir eru náttúrlega að horfa yfir tíu ára valdaskeið flokksins,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem staddur er á fundi breska Verkamannaflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×