Enski boltinn

Hermann í byrjunarliðinu - Heiðar á bekknum

Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth sem nú leikur á móti Derby County. Það blæs ekki byrlega fyrir Hermann og félaga því Matt Oakley kom Derby yfir eftir fimm mínútna leik. Heiðar Helguson situr á bekknum hjá Bolton sem leikur nú gegn Newcastle. 

Bolton stillir upp þremur sóknarmönnum í dag. Það eru Nicolas Anelka, Simon Davies og Ricardo Vaz Te. Ásamt Heiðari á bekknum situr sóknarmaðurinn El Hadji Diouf. Þar er staðan enn 0-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×