Erlent

Kristjaníubúar ákveða sig á morgun

Kristjaníubúar ákveða á morgun hver framtíð fríríkisins verður. Þeir funduðu síðast í gær en þá tókst 650 íbúum ekki að koma sér saman um afstöðu gagnvart tilboði ríkisins um uppbyggingu á svæðinu. Kristjaníubúar hafa frest til 1. apríl að ákveða sig. Kaupmannahafnarborg vill byggja blokkir þar sem Kristjanía er nú en hefur boðið íbúum fríríkisins íbúðir í þeim. Einhver hús eiga meira að segja að fá að standa áfram. Það hafa helst verið eiturlyfjasalar í fríríkinu sem hafa staðið gegn tillögunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×