Erlent

Egyptar kjósa um stjórnarskrárbreytingar

AFP

Egyptar munu í dag kjósa um stjórnarskrárbreytingar sem leiðtogar stjórnarandstæðinga segja að muni breyta landinu í lögregluríki. Um er að ræða 34 viðauka við stjórnarskrána sem meðal annars banna að stjórnmálaflokkar verði stofnaðir á trúarlegum grunni.

Stjórn Mubarak forseta segir að breytingarnar séu til þess fallnar að treysta lýðræði í sessi og hjálpa í baráttunni við hryðjuverk. Eins veita viðaukarnir stjórnvöldum auknar heimildir til að setja á neyðarlög ef hryðjuverkaógn þykir steðja að.

Stjórnarandstaðan hvetur stuðningsmenn sína til að sniðganga kosningarnar. Mannréttindasamtökin Amnesty International segja stjórnarskrárbreytinguna stórt skref aftur til fortíðar, mestu vanvirðingu á mannréttindum í landinu í 26 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×