Brown vill innleiða nýja stjórnarhætti 11. maí 2007 10:13
Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, lagði áherslu á að hann myndi innleiða nýja stjórnarhætti sem forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins í ræðu sem markaði upphaf baráttu hans fyrir leiðtogahlutverkinu. Brown sagðist vonast til að hann hefði nýjar hugmyndir og þá reynslu til að leiða til enn betri tíma í Bretlandi og þá bauð hann hverjum sem er innan Verkamannaflokksins til þess að takast á við sig um leiðtogahlutverkið. Brown sagði Verkamannaflokkinn hafa á síðustu tíu árum byggt upp sanngjarnara samfélag en gera þyrfti betur. Hann vildi að fólki sem legði hart að sér yrði umbunað og að landinu yrði stjórnað af sanngirni. Þá sagðist hann ætla að styrkja efnahag landsins enn frekar, eyða fátækt meðal barna og finna leiðir til þess að takast á við loftlagsbreytingar í heiminum. Auk þess lagði hann áherslu á staðfestu í baráttunni við hryðjuverkahættuna. Brown lagði einnig áherslu á að styrkja velferðarkerfið í Bretlandi og sagði menntun ástríðu sína. Hins vegar myndi hann leggja mesta áherslu á að takast á við erfið verkefni í heilbrigðisþjónustunni á fyrstu mánuðum sínum sem forsætisráðherra. Sagði hann baráttu næstu vikna snúast um að ræða nýjar hugmyndir en jafnframt myndi hann ræða við fólkið í landinu og hlusta á hvaða áherslur það vildi í landinu. Gordon Brown er fyrstur til að tilkynna að hann sækist eftir leiðtogahlutverkinu hjá Verkamannaflokknum og í morgun lýsti Tony Blair yfir stuðningi við hann í þeirri baráttu. Reikna flestir með að Brown taki við af Blair sem forsætisráðherra í sumar.
Mest lesið „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Innlent Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Innlent Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Innlent Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Erlent Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Erlent Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti Innlent Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Innlent Fyrsta konan sem stýrir MI6 Erlent Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Innlent Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Þeim sem skaut þingmenn lýst sem kristilegum íhaldsmanni Fyrsta konan sem stýrir MI6 Trump vill að ICE spýti í lófana og handtaki fleiri ólöglega innflytjendur Tala látinna eftir flugslysið komin í 270 Skutu eldflaugum á víxl í alla nótt Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Annar þingmaðurinn látinn og byssumannsins enn leitað Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Varnarmálaráðherra segir að Tehran muni brenna Tuttugu börn drepin í árás á íbúðablokk í Tehran Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Aukinn hraði í framsókn Rússa Minnst tveir drepnir í hefndarárásum Írana Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Segir Íran hafa farið yfir strikið Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Forsætisráðherra Spánar biður þjóðina afsökunar á spillingarmáli Flugriti indversku þotunnar sagður fundinn á húsþaki Segir klerkastjórninni að semja áður en það „verður of seint“ Yfirtaka Trumps á þjóðvarðliðinu dæmd ólögleg en hann heldur stjórninni Íranir séu vikum eða mánuðum frá kjarnorkusprengju Leita vísbendinga um flugslysið og fleiri fórnarlamba Æðstiklerkurinn hótar hefndum og drónaárásir eru hafnar Ísraelar gera árásir á Íran „Hann er ástæðan fyrir því að það er ótti“ Öldungadeildarþingmaður borinn út af blaðamannafundi Sjá meira