Íslenski boltinn

Valsstelpur sitja eftir

Elvar Geir Magnússon skrifar
Evrópuævintýri Vals er á enda.
Evrópuævintýri Vals er á enda.

Kvennalið Vals náði ekki að komast í átta liða úrslit í Evrópukeppni kvenna. Belgíska liðið Wezemaal náði óvænt jafntefli gegn Frankfurt, einu sterkasta félagsliði heims í kvennaflokki.

Hefði Frankfurt unnið leikinn hefði Valur komist áfram. Wezemaal komst yfir í leiknum en Frankfurt jafnaði skömmu fyrir leikhlé. Ekkert var skorað í seinni hálfleiknum og Valsstelpur sitja því eftir með sárt ennið og er úr leik.

Frankfurt vann riðilinn með sjö stig og Wezemaal fylgir þar á eftir með fjögur. Þessi lið eru komin í átta liða úrslit. Valur og Everton fengu þrjú stig hvort lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×