Bjargið Bangura! 16. desember 2007 14:00 Áhorfendur sýna stuðning sinn í verki. Nordic Photos / Getty Images
Áhorfendur á leik Watford og Plymouth sýndu Al Bangura stuðning sinn í verki með einföldum skilaboðum. „He's family," stóð á blöðunum sem stuðningsmenn héldu á lofti í hálfleik í gær - hann er hluti af fjölskyldunni. Bangura hefur verið vísað úr landi af yfirvöldum í Bretlandi en hann kom þangað fyrir fjórum árum síðan sem flóttamaður frá Sierra Leone. Lögfræðingar Bangura hafa nú áfrýjað máli hans til innanmálaráðherra Bretlands, Jacqui Smith. Bangura táraðist þegar hann sá blöðin á lofti. Eftir leikinn sagði Adrian Boothroyd, stjóri liðsins, að hann væri hrærður yfir þeim stuðningi sem bæði stuðningsmenn Watford og Plymouth sýndu. Al Bangura þakkar áhorfendum fyrir stuðninginn.Nordic Photos / Getty Images „Nú er áfrýjunarferlið farið af stað og nú tekur við bið. Við erum nú að reyna að vekja eins mikla athygli og við getum á málinu og vonandi verður fundin skynsamleg lausn á því." Bangura nýtur einnig stuðnings samtaka knattspyrnumanna í Englandi sem og alþjóðasamtaka leikmanna. Sömuleiðis hefur Elton John, fyrrum eigandi Watford og heiðursforseti félagsins, lýst yfir stuðningi sínum. „Ég ligg nú á bæn um að ráðherrrann fari yfir þetta mál og leyfi mér að vera áfram," sagði Bangura sem varð nýlega faðir. „Ég hef hlotið stuðning víða að og mér þykir vænt um það. Ég tel mig hafa gert allt rétt. Ég á mína fjölskyldu og vinnu og veld engum manni skaða. Ég er ánægður hér í Bretlandi og lít á það sem heimaland mitt."
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira