Mirror: Ákveðið að reka Eggert í september Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. desember 2007 11:40 Björgólfur og Eggert á leik með West Ham í vor. Nordic Photos / Getty Images
Sunday Mirror birtir í dag langa grein um aðdraganda þess að Eggert Magnússon hætti sem stjórnarformaður West Ham nú í vikunni. Blaðið segir að Björgólfur Guðmundsson, núverandi stjórnarformaður og eigandi félagsins, hafi ákveðið að láta rannsaka rekstur félagsins eftir að Eggert samdi við Svíann Freddie Ljungberg. Ljungberg mun hafa samið um að fá 110 þúsund pund í vikulaun sem er þrefalt það sem hann var með hjá Arsenal. Ljungberg er þrítugur og hefur verið plagaður af meiðslum síðustu ár. Hann hefur aðeins komið við sögu í átta leikjum á tímabilinu. Því er haldið fram að ákvörðun um að reka Eggert hafi verið tekin þegar ákveðið var að hann myndi hætta sem framkvæmdarstjóri félagsins í september síðastliðnum. Ástæðan fyrir því að það hafi ekki verið gert strax mun vera sú að Eggert nýtur mikilla vinsælda hjá stuðningsmönnum West Ham. Blaðið nefnir einnig Lucas Neill til sögunnar. Blackburn var tilbúið að selja hann til Liverpool í janúar síðastliðnum fyrir 1,5 milljónir punda en þá hafi Eggert opnað veskið og boðið Neill 90 þúsund pund í vikulaun - Liverpool hafði „aðeins" boðið honum 55 þúsund pund. Sunday Mirror segir einnig að Björgólfur hafi haft áhyggjur af því að Eggert hafi meðal annars ráðið tengdason sinn til að reka smásölurekstur félagsins. West Ham var í miklum hremmingum þegar þeir Björgólfur og Eggert keyptu félagið. Eftir það var liðið áfram í mikilli botnbaráttu en náði fyrir rest að bjarga sér frá falli, að miklu leyti vegna góðrar frammistöðu Carlos Tevez. Tevez-málið svokallaða dró mikinn dilk á eftir sér og á endanum var West Ham sektað um 5,5 milljónir punda vegna málsins.
Mest lesið Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Handbolti Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Enski boltinn Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum Fótbolti „Algjörlega niðurbrotinn eftir þetta tap“ Fótbolti Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Fótbolti Fleiri fréttir „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Sjá meira