Ný alþjóðastofnun refsi skussum 5. febrúar 2007 04:30 Hnattlíkan sem sýnir væntanlegar loftslagsbreytingar á vísindasafni í Tókýó. MYND/AP
Fjörutíu og fimm ríki hafa lýst yfir stuðningi við tillögu Frakka um að sett verði á stofn ný alþjóðleg umhverfisstofnun, sem hefði vald til að fylgja eftir samþykktum um ráðstafanir til að hægja á hlýnun loftslags og aðrar náttúruverndaraðgerðir. Hugmyndin er sú að hin nýja stofnun hefði vald til að ákveða refsiaðgerðir gegn skussum. Í hópi stuðningsríkja tillögunnar er ekki þau ríki að finna sem losa langmest magn gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið, svo sem Bandaríkin, Kína eða Indland. Ísland er heldur ekki á listanum. Frönsk stjórnvöld settu fram tillöguna að stofnun hinnar nýju alþjóðastofnunar á laugardag, daginn eftir að Sérfræðinganefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, IPCC, birti nýjustu skýrslu sína, þar sem skýrar er kveðið að orði en nokkru sinni fyrr um að hlýnun loftslags á jörðinni sé að mestu af mannavöldum. „Þetta er á okkar ábyrgð. Framtíð mannkynsins veltur á því að við grípum tafarlaust til aðgerða,“ sagði Jacques Chirac Frakklandsforseti. Angela Merkel, kanslari Þýskalands sem nú er jafnframt í formennskuhlutverkinu bæði í Evrópusambandinu og G-8-hópi mestu iðnvelda heims, sagði í viðtali um helgina að hún hygðist leggja til strangari takmörk á útblástursmengun bíla í Evrópusambandinu í því skyni að efla aðgerðir Evrópuríkja gegn loftslagsbreytingum.
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira