Erlent

Minnst 164 farast í Bagdad

Á vettvangi Slökkviliðsmenn að störfum á Sadriyah-markaðnum.
Á vettvangi Slökkviliðsmenn að störfum á Sadriyah-markaðnum. MYND/AP

Fjórar stórar sprengjur voru sprengdar í hverfum sjía-múslíma í Bagdad í gær. Sprengingarnar drógu að minnsta kosti 164 menn til dauða og enn fleiri særðust. Þetta voru mannskæðustu árásirnar á einum degi frá því írösk öryggismálayfirvöld hers og lögreglu, auk bandaríska herliðsins, efndu til átaks í að koma á friði í höfuðborginni fyrir tveimur mánuðum.

Flestir fórust þegar bílsprengja var sprengd inni í hópi verkamanna á Sadriyah-markaðnum í miðri Bagdad. Minnst 116 dóu og 145 særðust, að sögn talsmanns Al-Kindi-sjúkrahússins, þangað sem flest fórnarlömbin voru flutt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×