Erlent

Norður-Kóreumenn segjast til í að láta af kjarnorkuáætlun

AP

Stjórnvöld í Norður-Kóreu segjast nú tilbúin að láta af kjarnorkuáætlunum sínum og stíga fyrstu skrefin í að eyða þeim kjarnavopnum sem þegar eru til í landinu. Í dag hefjast sex ríkja viðræður um kjarnorkumál Norður-Kóreu í Peking í Kína.

Vonir standa til þess að árangur verði að viðræðunum en pattstaða hefur verið í málinu í þrjú ár. Fulltrúi Norður-Kóreu í sex ríkja viðræðunum segir að afstaða Bandaríkjamanna komi til með að ráða úrslitum - ef þeir séu tilbúnir í friðsamlega sambúð með Norður-Kóreu þá sé aldrei að vita hvað Norður-Kórea sé tilbúin að gera í staðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×